Beint á iPodinn – Apríl 2008

Þegar maður er í prófum þá er algjörlega nauðsynlegt að hafa nóg af tónlist til að hlusta á og koma sér áfram í efninu. Fyrri diskurinn í þetta skiptið er Two með Earshot. Diskurinn er frá 2004 og hefur farið í gegnum ótal hlustanir yfir árin. Earshot er ein af þessum hljómsveitum sem ótrúlega fáir hér heima hlusta á almennt en samt þegar maður spilar hittarana frá þeim þá segja flestir “Já þessir gaurar, heitar þeir í alvöru Earshot?”. Diskurinn er í rólegri kantinum samanborið við aðra diska frá Earshot og hentar því fínt í prófalesturinn. Uppáhalds lögin mín á honum eru Goodbye og Wait, mjög ólík lög en lýsa vel því hvað það er sem ég fíla við Earshot.

Hinn diskurinn í þetta skiptið er tónlistarrússíbaninn Testify með P.O.D.. Á þessum disk tekst P.O.D. að blanda saman rock, reggae og rappi og það svo vel að útkoman er algjör snilld. Bestu lögin eru Strength Of My Life og On The Grind, samt meira On The Grind sem byrjar með rappi og blandar því við mjög undarlega gloríu bakradda stemmingu sem ég fíla alveg í botn. Annars var líka nýjasti diskurinn með P.O.D., When Angels and Serpents Dance að koma út í seinustu viku, kanski maður fari bara að redda honum og blasta yfir blessaðri áhættustýringunni.


Related posts from the blog: