Beint á iPodinn – Apríl

Nýr mánuður ný tónlist á iPodinn. Núna eru flestir HRingar komnir með andlitið djúpt í bækurnar og því vel við hæfi að mæla með veglegri og þægilegri tónlist til að hlusta á meðan verið er að rembast yfir strembnum dæmum og óskýrum glærupökkum. Fyrri diskur mánaðarins er einmitt tilvalinn fyrir þá sem vilja hlusta á eitthvað rólegt sem hámarkar eftirtektin og skilning. Það er diskurinn Good Apollo, I’m Burning Star IV, Volume One: From Fear Through The Eyes of Madness með Coheed & Cambria. Hér á ferðinni diskur með fáranlega langt og undarlegt nafn en lögin eru flest alveg frábær og einstaka sinnum stendur maður sjálfan sig af því að syngja með. Uppáhaldslögin mín á disknum eru klárlega The Suffering og Once Upon Your Dead Body (ekki beint uppörfandi nöfn, en hressandi lög).

Seinni diskurinn þennan mánuðinn er Catch Without Arms með Dredg. Þetta er hljómsveit sem ótrúlega fáir hér heima hlusta á, hef ekki enn hitt á neinn sem hlustar á þetta nema litla systir en þessi er stórskemmtileg og mjög góð í lærdóminn. Tónlistin er svona í rólegri kanntinum en diskurinn inniheldur þó hress lög inná milli og bestu lögin eru klárlega Catch Without Arms og Hung Over On A Tuesday. Algjör skylda að hlusta allavegana á þennan disk í gegn einu sinni.


Related posts from the blog:

Leave a Reply