Beint á iPodinn – Febrúar 2008
Posted on Feb 13, 2008 in MusicÞá er komið að plötum mánaðarins sem bera verðskuldað sæti á iPodinum hjá mér. Fyrri platan í þetta skiptið er Japanska útgáfan af Echoes, Silence, Patience & Grace með Foo Fighters. Japanska útgáfan af plötunni inniheldur tvö stórskemmtileg lög sem ekki eru á Bandarísku og Evrópsku útgáfu disksins en það eru Once & For All og Seda sem áður hafa einungis fengist í live útgáfum. Platan er töluvert rólegri en seinasta plata Foo Fighters en mjög þægileg í hlustun og góð blanda hér á ferð sem sýnir getu hljómsveitarinnar mjög vel.
Seinni plata mánaðarins er ótrúlegt en satt Hip-Hop/Techno platan Overtones með Just Jack. Platan vakti áhuga minn eftir að ég heyrði lagið Writer’s Block af henni flutt á Bresku XFM útvarpsrásinni. Platan er ALLS ALLS ALLS ekki það sem ég bjóst við þegar ég sá Hip-Hop tagið á henni og er alveg stórskemmtileg í alla staði. Uppáhalds lögin mín eru Writer’s Block (video fyrir neðan) og Disco Friends

Related posts from the blog:
- Beint á iPodinn – Maí 2008
- Beint á iPodinn – Febrúar
- Beint á iPodinn – Júní 2008
- Beint á iPodinn – Apríl 2008
- Beint á iPodinn – Mars





