Beint á iPodinn – Júlí
Posted on July 2, 2007 in Music
Diskar mánaðarins eru klárlega hressleika diskar enda komið mitt sumar og þá fátt annað að gera en að hlusta á hressa tónlist. Ég er yfirleitt ekki hrifin af nokkurskonar teknó tónlist en diskurinn Wet from Birth með The Faint fær að vera undantekning á því. Diskurinn er svona teknó, rokk, punk blanda sem kemur geðveikt vel út og eru uppáhaldslögin mín klárlega Paranoiattack og Symptom Finger, sjúklega ávanabindandi lög.
Önnur plata mánaðarins er platan Saosin með Saosin. Saosin er frekar lítið þekkt hljómsveit sem litla systir bennti mér á. Þetta er alternative rokk band sem er hér með plötu sem er nokkuð þétt sett saman og fínt að hlusta á hana samfellt en best lagið er samt klárlega Collapse.


Related posts from the blog:




