Beint á iPodinn – September
Posted on Sep 2, 2007 in MusicÞá er komið að tónlist mánaðarins og í þetta skiptið er það tónlist sem mér finnst gott er að hafa í eyrunum meðan ég er að læra fyrst skólinn er byrjaður á fullu aftur.
Fyrri diskurinn er nýjasti diskurinn með Saybia sem kemur í verslanir á morgun. Hann ber nafnið Eyes On The Highway og er frekar rólegur og skemmtilegur. Það lag sem situr mest í mér er titillag plötunar. Þetta er frábær diskur til að hafa í eyranu yfir stærðfræði og heldur manni vel við efnið.
Hinn diskurinn í þetta skiptið er The Meaning In Makeup með My American Heart. Þessi diskur er allt allt öðruvísi en Eyes On The Highway, hann er fjörugur og inniheldur alternative rokk. Ég er orðinn alveg háður laginu The Keys To My Organ á þessum disk þannig að ég mæli með að kíkja á það.


Related posts from the blog:
- Beint á iPodinn – Apríl 2008
- Beint á iPodinn – Apríl
- Beint á iPodinn – Júní
- Beint á iPodinn – Maí
- Beint á iPodinn – Ágúst






Hansi.. hvernig væri að slumpa inn eins og einu bloggið… hefur ekkert skárra að gera drengur!